no
Books
Alexandre Dumas

Skytturnar III: Leyndarmálið

Í þessu þriðja bindi um skytturnar þrjár og ævintýri þeirra d‘Artagnan fáum við að kynnast hinni lævísku og bíræfnu Milady de Winter betur. En líkt og máltækið segir; oft er flagð undir fögru skinni og á það svo sannarlega við hér.
Ævintýrin um skytturnar þrjár og baktjaldamakk þeirra við frönsku hirðina birtust fyrst í blaðaútgáfu árið 1844 og var það ekki síst snörp frásögn sem greip athygli almennings en ævintýrin eru allt í senn söguleg, spennandi og húmorísk ásamt því að snerta á hinum ýmsu ádeilum sem eiga enn við lýði í dag.
Alexandre Dumas (1802–1870) er einn víðlesnasti rithöfundur Frakka og er hann þekktastur fyrir skrif sín um ævintýrin af skyttunum þrem og greifanum af Monte Cristo. Flest verka hans eru sögulegar skáldsögur en einnig skrifaði hann leikrit, ferðabækur, æviminningar og matreiðslubækur. Verk Dumas hafa verið kvikmynduð yfir 200 sinnum frá upphafi 20. aldarinnar. �
195 printed pages
Original publication
2019
Publication year
2019
Publisher
Saga Egmont
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)